12.11.2008 | 14:46
Greyið Bretinn, hann á svo bágt!
4000 Bretar misstu vinnuna í gær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.11.2008 | 14:30
Spilling á ekki bara við 'Island.
Tíu milljarða mistök | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.11.2008 | 09:31
'I morgunsárið blúsa ég.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2008 | 12:17
Hvað með ófaglært fólk!!
Mikið er gott að faglært fólk á Íslandi geti fengið atvinnu að nýju. Það er samt erfitt að flytja frá fjölskyldu sinni, einungis til að getað séð þeim farborða, hvað þá að flytja búslóðina. Ég vona bara að hér sé í boði flutningur á kostnað vinnuveitanda. Það er auðveldara sagt en gert að missa atvinnu sína, hafa verið launalaus og þurfa svo að leita að atvinnu erlendis.
En hvað með ófaglært fólk í landinu? 'A það bara að vera á bísanum og fá aðstoð frá kirkjunni eða bara að svelta!!
Ég trúi því að efnahagur Íslands eigi eftir að versna, fólkinu í landinu verði aldrei sagt hve slæmt ástandið sé. Ástandið núna, verður skrifað í sögubækur Íslands í framtíðinni.
Vil ég vekja athygli á því að nú, þurfum við lítilmagnan að standa saman fyllast þjóðarstolti í þessu "lýðræði" og mótmæla því sem er að gerast og heimta að ríkistjórnin segi af sér. Með svona "BANANA" við stjórnvölin verða engir vegir færir.
Leita starfsmanna á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.11.2008 | 09:35
Færeyingar eiga heiður skilið.
Vill gefa Íslendingum 300 milljónirnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.10.2008 | 18:46
Lífsgleði mín er engu lík og var.
Í dag vaknaði ég ánægð með lífið, fór í æfingar og síðan til mömmu. Alltaf gott að fara til mömmu, fá sér kaffi og spjalla um daginn og veginn. Þar er breyting á, því nú snerist umræðan við eldhúsborðið um, hvernig við ættum að fara að næstu mánuðina. Ég er elst fjögurra systkina og erum við fjölskyldan mjög samrýmd. Foreldrar mínir eru á sextugsaldri og hafa þrælað sér út allt sitt líf til að eiga ofan í okkur og á og aðstoðað þegar þörf er á, hvort sem það er tilfinningalega eða fjárhagslega og svo öfugt. Nú er staðan orðin svoleiðis að það sem þau hafa þrælað fyrir og eignast í gegnum tíðina, er kannski allt farið fyrir bí. Ég sjálf hef verið þeirri auðnu aðnjótandi að eignast tvær yndislegar stúlkur, fallegt heimili og þak yfir höfuðið. Það er líka hætta á því að það litla öryggi sem ég hef skapað, sé farið líka. Í stað gleði þá fylltist hjarta mitt mikilli sorg og það eina sem ég get gert er að biðja og taka á þessu einn dag í einu. Mér finnst mjög erfitt að horfast í augu við dagana núna. Það sem kemur mér á fætur á morgnana eru stúlkurnar mínar sem ég vil ekki að vanhagi neitt. Ég veit að margur hefur það verra en ég, þar á meðal ungt fólk sem er nýbyrjað búskap og hefur keypt sér bíl og hús með svokölluðum myntkörfulánum. Við í fjölskyldunni ákváðum það að við myndum gera meira af því að borða saman og styrkja hvert annað á þann hátt. Öll saman í púkk. Jólin yrðu þannig að við kæmum saman og lítið yrði um nýjar gjafir í ár heldur ættum við að föndra og finna eitthvað á nytjamörkuðum og gefa hvort öðru. Vonandi fara hlutirnir að breytast því lífsgleði mín er engu lík og var.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.10.2008 | 23:11
Ríkissjónvarpið fer eftir úreltum lögum.
Ég, sem skattgreiðandi, finnst það skammarlegt að þurfa að greiða fyrir að, eiga sjónvarp og að
horfa á það í þokkabót. Þegar ég bjó í Lúxemborg voru þó nokkrar stöðvar sem ég gat horft á,
án
þess að þurfa að borga fyrir það. Lúx og Ísland eru sambærileg lönd miðað við höfðatölu,
þannig
að hægt er að miða við það. Mér finnst svolítið sérstakt að ríkis rekin sjónvarpsstöð geti leyft
sér
, ekki aðeins að rukka þjóðina fyrir að eiga sjónvarp, heldur líka að vera á samkeppnismarkaði.
Þætti mér réttast að RÚV ætti, að hætta, að rukka þjóðina fyrir sjónvarpsseign, og vera áfram
á samkeppnismarkaði fyrir auglýsingar eins og Skjáreinn gerir. Persónulega finnst mér þetta
siðlaust. Ef einhverjar reglugerðir eru yfir það, að það sé verið að fara eftir lögum, þá eru þær
reglur örugglega síðan að sjónvarp kom hingað fyrst til lands, og engum þá, hefur dottið í hug
að sjónvarpshorf yrði með þessum hætti.
Skjárinn segir öllum upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.10.2008 | 23:35
Hvers eigum við að gjalda?
Eins og staðan er í dag hjá þjóðfélaginu, fólki sagt upp störfum fleiri manns búið að missa atvinnu sína, húsnæði sitt og þar að auki sparifé sitt, þarf að segja meira! Mætti þá ekki núllstilla samfélagið, væri þá ekki hægt að leyfa lífinu hér að ganga sinn vanagang, eins og ekkert hafi í skorist? Væri það einhver fræðilegur möguleiki? Erum við endanlega farinn á hausinn. Er það líka fræðilegur möguleiki að leggja þetta kvótakjaftæði niður og leyfa þeim bátum sem orðnir eru eftir, að veiða eins mikið af fisk eins og þeir geta, þeir svo selt hann og gefið svo þessum sem minna mega sín í soðið!!! Getum við, sem Íslendingar kyngt því, að það þurfi kannski, að taka upp annann gjaldmiðil en krónuna? Er hún ekki ónýt hvort sem er! Við værum ekki að selja andskotanum sálu okkar þó að svo yrði. Við erum Íslendingar, og verðum alltaf íslendingar hvernig sem fer. Það getur enginn tekið það frá okkur. Í sambandi við landhelgi okkar, ef svo fer, að við sameinumst ESB og bátar annars staðar frá koma hér og veiða, gætu Íslensku bátarnir ekki þá farið að róa á öðrum miðum, og veitt fisk þar?þetta eru nú bara mínir þankar, gætu verið rangar en gætu líka verið óvitlausar.Vil ég biðja ykkur sem þetta hafið lesið endilega að kommenta til baka. Er orðinlangþreytt eins og við öll, á krepputali og vil fá að sjá árangur hjá ríkisstjórninni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2008 | 09:58
Það var þörf en nú er nauðsyn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)